Kennsla hefst í Glerárskóla mánudaginn 11. janúar á hefðbundinn hátt samkvæmt stundaskrá.
Forráðamenn eru vinsamlegast beðnir um að ræða við nemendur um að vera ekki við afgirta svæðið við B-inngang og fara alls ekki inn á það.
Hreinsunarstarf og viðgerðir halda áfram í næstu viku og við gætum átt von á einhverjum truflunum á rafmagni, öryggiskerfi og netsambandi.
Enn og aftur þökkum við fyrir skilninginn og samstöðuna og við hlökkum til að sjá nemendur á mánudaginn og hefja skólastarfið á nýjan leik af miklum krafti.