Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Kartöfluuppskera

potatoe01

Um mánaðarmótin tóku nemendur í 7. bekk upp kartöflur sem settar voru niður á þemadögum í vor. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og margir sýndu að þeir kunna vel til verka. Þetta var töluverð vinna en stinga þurfti upp garðinn, bera kartöflurnar inn, þvo þær og vigta. Uppskeran var frekar rýr þetta árið en dugði vel til þess að allir sem vildu gátu tekið með sér heim í soðið og síðan er hluti nýttur í heimilisfræðikennslu. (sjá myndir)