Hið árlega jólaföndur foreldrafélagsins og bekkjaráða skólans verður laugardaginn 26. nóvember nk. frá kl. 11:00-13:00.
Boðið verður uppá fjölbreytt föndur á D-gangi en gengið inn um innganginn við íþróttahúsið. Foreldrafélagið leggur til föndurefni og allt sem til þarf fyrir veglegt föndur verður á staðnum. Vonumst til að sjá ykkur og að við getum átt notalega stund saman í aðdraganda jólanna.
Nemendur í 10. bekk verða með vöfflusölu í stofu D1 til styrktar skólaferðalagi sínu í vor. Veitingarnar kosta 700 kr. en frítt er fyrir leikskólabörn. Ath. að eingöngu er hægt að greiða með peningum eða AUR appinu