Það er mikill lestraráhugi í Glerárskóla um þessar mundir. Áhugi nemenda á jólabókunum nýútkomnu er slíkur að bókasafn skólans þurfti að grípa til aðgerða. Settur var upp biðlisti fyrir margar af vinsælustu bókunum. Þar skrifuðu nemendur nöfn sín og panta þar með viðkomandi bók og fá hana afhenta þegar röðin kemur að þeim.