Á morgun, þriðjudaginn 17. febrúar, efnir nemendafélagið til íþróttatreyjudags. Þá eru nemendur og starffólk hvatt til þess að mæta í íþróttatreyju í skólann. Öll lið eru jafn rétthá og það sama má segja um íþróttagreinar.
Á morgun er líka sprengidagur og síðasti kennsludagur fyrir vetrarfrí. Kennsludagurinn er í styttri kantinum en er skóli til kl. 12:00. Frá 12:00 – 13:15 sinna stuðningsfulltrúar nemendum í 1. – 4. bekk í stofum eða úti en kl. 13:15 tekur frístund við eða nemendur fara heim. Nemendur í 1. – 4. bekk mega líka fara heim kl. 12:00 ef forráðamenn óska þess. Nemendur í 5 – 10. bekk fara heim að loknu matarhléi. Vetrarfrí verður síðan dagana 18. – 20. febrúar komandi.
Kennsla hefst að loknu vetrarfríi mánudaginn 23. febrúar.


