Íþróttamót miðstigs fór fram á dögunum og þar var tekist á í hinum ýmsu greinum frjálsra íþrótta. Gleði og keppnisandi ríkti á leikunum og fór verðlaunaafhending fram í Kjarnaskógi í gær. Það voru margir sigursælir og í gríðarlega spennandi boðhlaupinu unnu nemendur í 7. bekk Súlur, bæði í drengja og stúlkna flokki. Hér má sjá þau sigurreif.