Það er ávallt í nægu að snúast hér í Glerárskóla. Námið er vitaskuld alltaf í aðalhlutverki en það er mikilvægt að hafa margvísleg þroskandi og fræðandi verkefni til að grípa sem milli krefjandi bóknámsverkefna
Nú er undirbúningurinn fyrir árshátíð skólans kominn á fullt skrið. Bekkir eru margir búnir að semja atriðin sín, það er óðum að koma mynd á leikmyndina og listamenn huga nú að sköpun sinni, frumortum ljóðum og myndverkum.