Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Hvað sé ég?

Nemendur í 5.-6. bekk Glerárskóla heimsóttu í vetur þrjá listamenn á Akureyri, þau eru þau Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Egill Logi Jónasson (bæjarlistamaður Akureyrar 2025) og Arna Guðný Valsdóttir. Krakkarnir skrásettu heimsóknirnar með iPad og máluðu andlitsmynd af listamönnunum og settu inn á hana það sem þeim fannst spennandi og áhugavert.
Markmið með verkefninu var að gefa nemendum gott tækifæri til að kynnast nánar listafólki, sköpunarferli, vinnuaðstöðu og umhverfi þeirra.
Sýning með myndverkum nemendanna verður opnuð í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 18. apríl kl. 14.00. Þar verða einnig sýnd myndbönd frá heimsókninni og skissur sem nemendur unnu í hugmyndavinnu.
Umsjón með verkefninu hefur Elsa María Guðmundsdóttir, MA í menningarstjórnun og sjónlistakennari í Glerárskóla.
Sýningin er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og er í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.
Verið hjartanlega velkomin. Léttar veitingar verða í boði við opnunina.