Efnt var til fundar með frambjóðendum í Glerárskóla í morgun. Þar sátu fulltrúar þeirra átta flokka sem bjóða fram á Akureyri í komandi bæjarstjórnarkosningum. Þeirra hlutverk var að svara spurningum nemenda á unglingastigi.
Krakkarnir hafa ekki kosningarétt, eins og við vitum, en fundurinn var einstaklega fræðandi fyrir þau og mikil lærdómur fólst í því að undirbúa sig fyrir fundinn, setja sig inn í bæjarpólitíkina og semja spurningar.
Spurningarnar voru vel ígrundaðar og tóku á mörgu sem brennur á krökkunum, bæði hvað varðar nærumhverfi þeirra, bæjarfélagið í heil að ógleymdum skóla- og menntamálunum.
Frambjóðendurnir svöruðu spurningum nemenda af alvöru og eftir fundinn er ljóst að krakkarnir skilja stjórnmálin betur og stjórnmálafólkið skilur þarfir krakkanna betur. Þá er markmiðinu náð.



