Sköpun fléttast saman við og styður allar námsgreinar. Það er ekki verra ef margir geta notið hennar í leik og starfi.
Í Glerárskóla hefur verið lögð áhersla á það í myndmenntakennslunni að útbúa skemmtileg listaverk á skólalóðinni með því að mála marglitar og glæsilegar myndir sem stuðla að aukinni hreyfingu krakkanna og gera lífið skemmtilegra.
Þar er nú hægt að fara í margvíslega jafnvægisleiki, parísarhopp og sitthvað fleira eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.