Nemendur í myndlistavali fóru í safnaferð föstudaginn 10. apríl 2015.
Þeir sáu yfirlitssýningar tveggja listamanna sem voru mjög ólíkar. Í sínum fjölbreytileika buðu þær upp á ýmiskonar aðferðir, mismunandi vinnubrögð og hugmyndafræði við myndgerð.
Safnakennari leiðbeindi þeim um Listasafnið og Ketilhúsið og var það bæði fræðandi og skemmtilegt.