Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Haustfrí, skipulagsdagur og viðtalsdagur

Í dag er síðasti kennsludagur fyrir tveggja daga haustfrí kennara og nemenda Glerárskóla sem er næstkomandi mánudag og þriðjudag, 23. og 24. október.  Miðvikudaginn 25. október er skipulagsdagur í skólanum og nemendur í fríi. Fimmtudaginn 26. október er viðtalsdagur í skólanum.

Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá föstudaginn 27. október.

Frístund er opin alla dagana í næstu viku, í haustfríinu, á skipulagsdaginn og viðtalsdaginn frá klukkan 8:00 til 16:15 fyrir þau börn sem skráð hafa verið í frístundina þessa daga.