Það hefur heldur betur verið gaman hjá okkur undanfarið. Tíundi bekkur snæddi saman hátíðarkvöldverð í sínu fínasta í gærkvöldi með umsjónarkennurunum sínum. Þar luku krakkarnir skólagöngunni á sinn hátt, þótt það sé vissulega mætingaskylda hjá þeim eftir helgina.
Í dag skellti sjötti bekkur sér út að leika í góðaveðrinu og grillaði pylsur. Áttundi bekkur skellti sér yfir í næsta póstnúmer og blés til heilmikillar leikjaveislu á Hamrakotstúni. Níundi bekkur skemmti sér í sundi og skellti sér síðan í golfkennslu.
Hér má sjá myndir af herlegheitunum.