Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Facebook síða Glerárskóla

Grunnskólamót UFA

Síðasta vika var sannkölluð íþróttavika hjá nemendum okkar í 4.–7. bekk en þau tóku þátt í frjálsíþróttamóti á vegum Ungmennafélags Akureyrar þar sem keppt var við nemendur úr öðrum skólum á Akureyri. Keppt var í spretthlaupi, langstökki, boðhlaupi og reipitogi.

Mótið var bæði einstaklings- og liðakeppni. Nemendur í 4. bekk tóku þátt í sínu fyrsta móti og stóðu sig afar vel. Þau sigruðu liðakeppnina og ríkti mikil gleði í hópnum yfir þeim árangri. Nemendur í 5.-7. bekk náðu einnig góðum árangri í ýmsum greinum. Tíu efstu keppendurnir í hverri grein fengu viðurkenningarskjal og boð um að æfa frítt með UFA í einn mánuð.