Líkt og undanfarin ár tekur Glerárskóli þátt í átakinu Göngum í skólann sem hefur það markmið að hvetja nemendur til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Með virkum ferðamáta er átt við að auka hreyfingu í daglegu lífi t.d. með því að nýta göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti.
Ávinningurinn er ekki eingöngu andleg og líkamleg vellíðan heldur er þetta umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða. Á heimasíðu verkefnisins www.gongumiskolann.is er að finna gátlista til að fara með um hverfið og meta hversu vænlegt er að nýta slíkan ferðamáta.
Skráning á ferðamáta nemenda og starfsfólks Glerárskóla verður á tímabilinu 14. – 25. september 2015.
ÁFRAM GLERÁRSKÓLI