Það er sannarlega gulls ígildi að eiga góða granna. Krakkarnir í sjötta bekk tóku sér hvíld frá námi í gær og heimsóttu jafnaldra sína í Síðuskóla. Þar var vel tekið á móti þeim og nemendur skólanna léku sér saman í góða veðrinu í tvær kennslustundir. Þeim tíma var mjög vel varið enda mikilvægt að kynnast jafnöldrum í öðrum skólum og treysta vinaböndin.