Í gær, þriðjudaginn 17. nóvember, komu Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrar og Óðinn Svan Óðinsson formaður bæjarráðs í heimsókn í Glerárskóla.
Heimsóknin var afar ánægjuleg og gaf tilefni til góðra og gagnlegra samtala um skólann og það mikilvæga starf sem þar fer fram á hverjum degi.
Það er dýrmætt að fá tækifæri til að kynna skólastarfið á þennan hátt, miðla reynslu og eiga samtal um áherslur, þróun og framtíð skólans.
Við þökkum Berglindi og Óðni kærlega fyrir komuna, áhugann og gott samtal.



