Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Góða ferð og góða skemmtun

Það var ansi glatt yfir krökkunum í sjöunda bekk í morgun þegar þeir komu farangrinum sínum fyrir í les rútunnar áður en lagt var af stað í Hrútafjörðinn þar sem þau verða út vikuna í skólabúðunum að Reykjum.

Á Reykjum fást þau við ýmislegt fræðandi og skemmtilegt. Í skólabúðunum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi uppeldis- og félagsleg markmið og að því stefnt:

– Að auka samstöðu og efla samvinnu milli kennara og nemenda
– Að auka félagslega aðlögun nemenda
– Að þroska sjálfstæði nemenda
– Að nemendur fáist við áður óþekkt viðfangsefni
– Að nemendur kynnist nýju umhverfi og ólíkum lífsmáta
– Að örva löngun nemenda til að athuga og rannsaka umhverfið og komast að niðurstöðu
– Að auka athyglisgáfu nemenda

Eitt af markmiðum skólabúðanna er að venja nemendur við að búa fjarri foreldrahúsum, sofa á ókunnum stað, sjá um sig, hafa reglu á fötum og farangri sínum og hirða herbergið sitt. Við þetta njóta nemendur tilsagnar kennara síns og starfsfólks skólabúðanna.

Við erum fullviss um að þetta gangi afar vel, eins og yfirleitt. Góða ferð krakkar og skemmtið þið ykkur vel.