Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Góða ferð og góða skemmtun

Krakkarnir í tíunda bekk lögðu af stað í langþráð skólaferðalag með kennurum sínum í morgun. Hópurinn hóf reyndar daginn í skólanum þar sem þau gæddu sér á „hollum og staðgóðum“ morgunverði, ostaslaufu og kleinuhring.
Það var greinileg spenna og eftirvænting hópnum þegar í rútuna var komið. Stefnan var sett á Go-kart brautina ofan Akureyrar þar sem spennandi kappakstur beið krakkana. Síðan var haldið á Sauðárkrók og þaðan á Bakkaflöt þar sem ævintýrin bíða þeirra næstu daga með margvíslegum áskorunum og þrautum.
Við segjum góða ferð og góða skemmtun og vitum reyndar að ferðin verður bæði góð og stórskemmtileg.