Facebook síða Glerárskóla
|
Góð byrjun á deginum Skrifað 18. 09 2020
![](https://glerarskoli.is/wp-content/uploads/2020/09/20200918_0837380-150x150.jpg) Það var fjör í morgun á fyrsta söngsal Glerárskóla. Þegar bjallan glumdi klukkan 8.15 í morgun gengu nemendur prúðir en frjálslegir í fasi inn í íþróttasalinn þar sem gítartríó sló taktinn fyrir samsöng. Byrjað var á skólasöngnum, þá var farið í Sumargleðina, Danska lagið og fjörinu lauk með því að skólasöngurinn var kyrjaður að nýju.
Já, það er hressandi að byrja daginn á söng, sérstaklega eftir gönguferð í skólann. Á mánudaginn hefst átakið Gengið í skólann og við hvetjum alla okkar nemendur að koma gangandi eða hjólandi í skólann. Það sama á að sjálfsögðu við um starfsfólk Glerárskóla.
Göngum, hjólum, lesum og lærum!
|