Skólasetning Glerárskóla verður mánudaginn 24. ágúst. Eins og við höfum þegar tilkynnt verður forráðamönnum ekki boðið til setningarinnar í ár vegna ástandsins í samfélaginu. Setningaathafnirnar verða þrjár og fara fram í íþróttasal skólans. Nemendur mæta sem hér segir:
2. til 4. bekkur kl. 9:00
5. til 7. bekkur kl. 10:00
8. til 10. bekkur kl. 11:00
Að lokinni stuttri athöfn í íþróttasalnum ganga nemendur til stofu með umsjónarkennara sínum sem býður þá velkomna og fer yfir ýmis hagnýt atriði.
Nemendur í fyrsta bekk hafa verið boðaðir til viðtals þennan sama dag ásamt forráðamönnum sínum.