Í gær tóku fulltrúar Glerárskóla þau Viktor Már Árnason, Bergur Ingi Óskarsson, Tinna Rún Jónsdóttir og Júnía Efemía Felixdóttir þátt í Skólahreysti í íþróttahöllinni. Krakkarnir sem keppa eru í valgrein í skólahreysti og stóðu sig mjög vel og lentu í 4. sæti, aðeins hársbreidd frá 3.sæti. Tinna Rún gerði sér lítið fyrir og vann hreystigreip stúlkna. Góður árangur og lofar góðu. Hægt að sjá nánar á skolahreysti.is