Tveir nemendur í 7. bekk, þeir Natan Dagur Fjalarson og Viktor Jens Gunnarsson gerðu sér lítið fyrir og komust í úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Munu þeir í framhaldinu fara í vinnusmiðjur og úrslitakeppni til Reykjavíkur. Óskum við þeim til hamingju með þetta og munum fylgjast vel með gengi þeirra þar.