Verkefnið Réttindaskóli- og frístund UNICEF er bæði hugmyndafræði og hagnýtt verkefni sem miðar að því að auka virðingu, vernd og framkvæmd mannréttinda.
Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar sem vinna að verkefninu leggja Barnasáttmálann til grundvallar í öllu sínu starfi, hvort sem það er í skipulagningu, stefnumótun og starfsháttum. Lögð er áhersla á að skapa umhverfi sem byggir á merkingarbærri þátttöku barna, jafnrétti og virðingu.
Stofnað verður réttindaráð nemenda og farið eftir innleiðingarferli í samstarfi við UNICEF á Íslandi.
Við í Glerárskóla erum stolt og ánægð með að taka þátt í þessu frábæra verkefni.
Frekari upplýsingar munu kom inn á heimsíðu skólans og við flytjum ykkur nánari fréttir af framvindu verkefnisins þegar við á.
Með bestu kveðjum úr Glerárskóla.
Frá undirritun í Glerárskóla



