Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Glerárskóli er hnetulaus skóli

Í flestum skólum er einhver með bráðaofnæmi, ýmist nemendur eða starfsfólk.

Í Glerárskóla er nemandi með bráðaofnæmi fyrir hnetum. Bráðaofnæmi eru skjót og lífshættuleg ofnæmisviðbrögð þar sem ofnæmisvaldurinn er oftast fæða, lyf eða skordýrabit.

Einstaklingur með bráðaofnæmi fyrir hnetum þarf ekki að borða hnetur til að fá ofnæmisviðbrögð. Nóg er að hann komist í snertingu við matvæli sem innihalda hnetur. Einnig getur snerting við einstakling sem hefur verið að meðhöndla hnetur valdið svæsnum ofnæmisviðbrögðum.

Af þessum ástæðum hefur sú stefna verið tekin að Glerárskóli er hnetulaus skóli. Í því felst að matur innan skólans innihaldi ekki hnetur að neinni gerð, hvorki jarðhnetur eða trjáhnetur (pekanhnetur, kasjúhnetur, möndlur o.fl.).

Þetta þýðir að hvorki börn né starfsmenn skólans koma með hnetur inn í skólann. Við viljum biðja foreldra að gæta þess að börnin komi ekki með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, flestar tegundir af Corny, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira.