Hið árlega frjálsíþróttamót miðstigs Glerárskóla var haldið fimmtudaginn 1. júní á Þórsvellinum og í Boganum. Líf og fjör og keppt í fimm greinum: 60 m spretthlaupi, langstökki, spjótkasti, kúluvarpi og endað síðan á 400 m. boðhlaupi. Allir taka þátt og margir sigurvegarar og hér er mynd af verðlaunahöfunum.