Frá og með miðvikudeginum 7. september n.k. munu nemendur skammta sér sjálfir á diskana í matartíma. Einnig verða settar ruslafötur fyrir lífrænan úrgang fyrir alla árganga líkt og gert var í fyrra þegar skólinn tók þátt í verkefni gegn matarsóun. Við stefnum ötullega að því að verða umhverfisvænni í dag en í gær en það er stór þáttur í stefnu skólans.
Gott væri ef forráðamenn aðstoðuðu okkur með því að ræða við börnin sín um mikilvægi þess að taka mátulega á diskinn til að litlu verði hent.