Framkvæmdir við A-álmu Glerárskóla hafa gengið vel í haust. Búið er að skipta um þak og í haustfríinu var hafist handa við að grafa út svæði milli A og D-álmu skólans, eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Öll vinna fer fram innan lokaðs svæðis og vinnuvélar og tæki sem notaðar eru við framkvæmdirnar fara um sérstaka leið á bílastæði sunnan skólans. Ítrustu varkárni er ávallt gætt á og við vinnusvæðið.