Það var sannarlega gaman þegar nýja B-álma Glerárskóla var formlega tekin í notkun föstudaginn 13. Fjöldi góðra gesta heimsótti okkur og naut góðra veitinga.
Forráðamanna margra nemenda komu og skoðuðu herlegheitin, gamlir nemendur og starfsfólk kíktu í heimsókn og áhrifafólk frá Akureyrarbæ heiðruðu okkur með nærveru sinni.
Kennsla hófst í B-álmunni klukkan 8.15 nú í morgun og þar eru allir glaðir.