Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Frábær árshátíðarvika að baki!

Rétt tæplega 700 gestir heiðruðu okkur með nærveru sinni á árshátíðarsýningum nemenda Glerárskóla nú í vikunni. Sýningarnar voru þrjár og afar metnaðarfullar en eins og hefðin segir til um voru oddatölubekkir skólans voru með atriði. Að venju var níundi bekkur með stærsta atriðið sem í ár var Latibær með öllum sínum söngvum og dönsum.

Árshátíðin er ansi mikill skóli fyrir nemendur. Æfa þarf atriðin og þar reynir á samvinnu og vinarþel. Listræn sköpum er í hávegum höfð þessa daga því auk æfinga á leikverkum, söng og dansi taka nemendur þátt í myndlista- og ljóðakeppni og skreyta skólann í hólf og gólf.

Nemendur í tíunda bekk gerðu sér glaðan dag og snæddu saman hátíðarkvöldverð sem matsveinn skólans reiddi fram.

Árshátíðardansleikurinn fór vel fram á öllum aldursstigum og allir fóru brosandi heim.

Við þökkum gestum fyrir komuna og nemendum og starfsfólki fyrir sérlega ánægjulega viku.

Hér má sjá ljósmyndavídeó frá árshátíðardögunum.
Hér má skoða ljósmyndasafn frá árshátíðardögnunum.