Foreldraröltið hófst í vikunni. Þá hittust bekkjarfulltrúar í öðrum bekk og gengu um hverfið okkar á miðvikudagkvöldið þegar unglingarnir voru við að fara heim af opnu húsi hér í Glerárskóla.
Foreldrafulltrúar bekkjanna hafa umsjón með að skipa í vaktir en gengið er um hverfið jafnt á virkum dögum og um helgar. Foreldrar rölta um hverfið og eru sýnilegir á mánudags- eða miðvikudagskvöldum, þegar opið hús er í skólanum og síðan annað hvort föstudags- eða laugardagskvöld.
Myndin var tekin í upphafi foreldraröltsins á miðvikudagskvöldið.