Nemendum á unglingastigi Glerárskóla var boðið í leikhús í gær og þeir skemmtu sér vel. Verkið sem þau sáu var Fokk mæ læf í uppfærslu Leikfélags unga fólksins. Leikritið tekur á skemmtilegan en jafnframt sláandi hátt þeim erfiðleikum og hindrunum sem unglingar standa frammi fyrir á mótunarárum sínum. Emma Ósk Baldursdóttir, nemandi í 9SV Glerárskóla er í leikhópnum er verkið er meðal annars byggt á reynsluheimi leikarana sjálfra.
Nemendurnir gengu frá skólanum og fóru létt með það. Þeir röskustu voru komnir að samkomuhúsinu á tæpum hálftíma sem er fimm mínútum styttri tími en Google maps gerir ráð fyrir 😉 .