Það var pínu kalt og þokan lá yfir efri hluta skíðasvæðisins þegar fyrstu rúturnar frá Glerárskóla mjökuðu sér upp eftir. Færið var hins vegar ljómandi gott og krakkarnir nutu útiverðunnar og létu veðrið ekki á sig fá.
Allir skemmtu sér konunglega og margir eru eflaust pínu þreyttir eftir átök morgunsins.
Takk fyrir góðan dag.


