Fjölskyldusvið Akureyrarbæjar er með aðsetur að Glerárgötu 26 og er opið alla virka daga kl. 09:00-15:00. Sími 460-1420. Fjölskyldusvið starfar í þremur teymum sem skiptir með sér verkefnum á eftirfarandi hátt:
- Barnaverndarteymi sér um mál er falla undir barnaverndarlög. Þar starfa félagsráðgjafar, uppeldisfræðingur og sálfræðingur.
- Félagsþjónustuteymi fjallar um mál er varða félagsþjónustu sveitarfélaga ásamt lögum um málefni fatlaðra, s.s. ráðgjöf til fatlaðra og fjölskyldna þeirra m.a. í formi stuðningsviðtala, samhæfingar á þjónustu og fræðslu. Þar starfa félagsráðgjafar, þroskaþjálfar og sálfræðingur.
- Skólateymi vinnur samkvæmt lögum um leik og grunnskóla. Þar starfa sálfræðingar ásamt sérkennsluráðgjöfum í leik og grunnskóla.
Skólar og foreldrar geta leitað til Skólateymis vegna málefna einstaka barna. Tilvísunareyðublöð til útfyllingar eru í skólanum.
Það er hlutverk Fjölskyldusviðs að veita einstaklingum og fjölskyldum faglega aðstoð vegna félagslegra, uppeldislegra og /eða námslegra þarfa þannig að þeir / þær verði sem mest sjálfbjarga og geti notið almennra lífsgæða.