Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Fjölgreindarleikar á þriðjudag og miðvikudag

Á þemadögunum á morgun þriðjudaginn 14. febrúar og miðvikudaginn 15. Febrúar  verður efnt til fjölgreindarleika í Glerárskóla. Þá daga verða allir nemendur í skólans í starfsstöðinni í Glerárskóla.

Nemendum verður skipt í hópa þvert á skólastigin. 20 stöðvar verða í skólanum og utan hans þar sem nemendur leysa ákveðin verkefni eða taka þátt fjölbreyttum leikjum sem í senn reyna á huga, hönd og heilbrigði. Nemendahóparnir fara á milli stöðva á 20 mínútna tímabili og klára því allar stöðvarnar 20 á þessum tveimur dögum.

Þessa tvo daga lýkur hefðbundinni kennslu kl. 13.15 en engin breyting verður á valgreinakennslu, hún verður samkvæmt stundaskrá.