Nemendafélag Glerárskóla stóð fyrir íþróttatreyjudegi í dag. Fjölmargir nemendur hlýddu kallinu og komu í skólann í liðstreyju síns eftirlætis félags.
Myndin af þessum nemendum, úr mörgum bekkjum skólans, sýnir fjölbreytnina í treyjuvalinu, samheldni meðal nemenda og gleði með daginn.
Brynja ritari var sjálfkjörin liðstjóri!