Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Fimmtudaginn 2. júní 2022 verða skólaslit í Glerárskóla.

Nemendur í 1. – 7. bekk mæta í stofur, þaðan er gengið í röð í íþróttasal þar sem formleg slit fara fram. Að þeim loknum fara nemendur aftur í röð í stofur þar sem umsjónarkennarar kveðja. Frístund verður opin milli 8:00 – 9:00 en eftir skólaslitin er komið sumarfrí hjá nemendum.

Skólaslit 8. – 10. bekkjar verða í Glerárkirkju sama dag klukkan 16:30. Á eftir slitunum verður nemendum 10. bekkjar, forráðamönnum þeirra og starfsfólki, boðið í kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.

Skólaslitin verða sem hér segir:

Kl. 9:00:          1. – 4. bekkur mætir í heimastofur – að loknum skólaslitum er sumarfrí

Kl. 10:00         5. – 7. bekkur mætir í heimastofur – að loknum skólaslitum er sumarfrí

Kl. 16:30         8. – 10. bekkur mætir í Glerárkirkju, 10. bekkur ásamt aðstandendum –  hátíðarstund, útskrift og kaffiveitingar í boði 10. bekkjar Glerárskóla en forráðamenn 9. bekkinga aðstoða við borðhald. Að loknum skólaslitum fara nemendur í sumarfrí.