Nemendur í 1. – 7. bekk mæta í stofur, þaðan er gengið í röð í íþróttasal þar sem formleg slit fara fram. Að þeim loknum fara nemendur aftur í röð í stofur þar sem umsjónarkennarar kveðja. Frístund verður opin milli 8:00 – 9:00 en eftir skólaslitin er komið sumarfrí hjá nemendum.
Skólaslit 8. – 10. bekkjar verða í Glerárkirkju sama dag klukkan 16:30. Á eftir slitunum verður nemendum 10. bekkjar, forráðamönnum þeirra og starfsfólki, boðið í kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.
Skólaslitin verða sem hér segir:
Kl. 9:00: 1. – 4. bekkur mætir í heimastofur – að loknum skólaslitum er sumarfrí
Kl. 10:00 5. – 7. bekkur mætir í heimastofur – að loknum skólaslitum er sumarfrí
Kl. 16:30 8. – 10. bekkur mætir í Glerárkirkju, 10. bekkur ásamt aðstandendum – hátíðarstund, útskrift og kaffiveitingar í boði 10. bekkjar Glerárskóla en forráðamenn 9. bekkinga aðstoða við borðhald. Að loknum skólaslitum fara nemendur í sumarfrí.