Undanfarið hefur tölvupóstur sem sendur er frá Glerárskóla í gegnum Mentor í einhverjum tilfellum verið flokkaður sem ruslpóstur hjá viðtakendum (foreldrum og forráðamönnum nemenda).
Þetta getur verið bagalegt og viljum við því biðja forráðamenn nemenda að opna ruslpóstinn sinn (mappa sem heitir ruslpóstur eða sambærilegt e: spam) og skoða hvort þar leynist mentor-póstur frá Glerárskóla. Ef svo er, þá þarf að velja viðkomandi póst og merkja hann sem ekki rusl. Þá ætti pósturinn að berast í innhólfið í framtíðinni.