Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Fatamarkaðurinn gengur vel – föt óskast!

Fatamarkaðurinn okkar sem settur var upp í tengslum við á árshátíð Glerárskóla, 9. og 10. apríl, hefur gengið vel.

Nokkuð hefur gengið á lagerinn og við hvetjum fólk til að koma með fatnað sem fer á skiptimarkaðinn sem öllum er frjálst að nýta.

Óskað er eftir fatnaði fyrir 6-16 ára, hreinum og heillegum.

Markaðurinn verður opinn á meðan á árshátíðinni stendur og að henni lokinni munu nemendur úr umhverfisnefnd skólans komi því sem eftir verður til Norðurhjálpar. Markmið fatamarkaðarins er að skólinn leggi sitt af mörkum til endurnýtingar á vefnaðarvöru, enda er sá iðnaður mjög orkufrekur og kostnaðarsamur.