Stærðfræðin er móðir allra vísinda og því bæði rétt og nauðsynlegt að gera henni góð skil eins og við í Glerárskóla gerum í dag, á degi stærðfræðinnar.
Í stað hefðbundinnar kennslu fengu nemendur um stund að glíma við margvíslegar þrautir og leiki sem kölluðu á stærðfræðilega hugsun, rökhyggju og útsjónarsemi.
Flestir skemmtu sér glimrandi vel í dag, eins og reikna mátti með!