Á morgun, þriðjudaginn 21. febrúar (daginn fyrir öskudag og vetrarfrí) efnir nemendaráð Glerárskóla til búningadags í skólanum hjá okkur öllum bæði nemendum og starfsfólki.
Bréf var sent til foreldra í síðustu viku og fulltrúar nemendaráðs gengu í kennslustofur í morgun og minntu nemendur á búningadaginn.
Höfum gaman, sjáumst í allskonar búningum en skiljum öll „vopn“ eftir heima.