Bóndadagurinn er í dag og þar með er þorrinn hafinn. Í tilefni dagsins bauð mötuneyti Glerárskóla upp á kraftmikla og ljómandi góða kjötsúpu sem sannarlega féll í kramið hjá krökkunum.
Nemendur í 6. og 7. Bekk fengu Bergþór Ólafsson rithöfund í heimsókn en hann sagði frá ærslafullri bók sinni Draumar sem fjallar um krakka í 7. bekk, ævintýri þeirra og drauma. Krakkarnir höfðu gaman af lestrinum og margir sögðu frá draumum sínum sem voru fjölbreyttir, allt frá atvinnumennsku í pílukasti yfir í það að verða rithöfundur.


