Árlega tilnefna börn á aldrinum sex til fimmtán ára bestu barnabækur ársins. Tilnefningarnar fara fram í grunnskólum og bókasöfnum um allt land.
Nemendur Glerárskóla hafa alltaf verið duglegir að taka þátt og tilnefna þær bækur sem þeir telja eiga skilið að hljóta viðurkenningu. Veitt eru þátttökuverðlaun í hverjum skóla sem Barnabókavörður Amtsbókasafnsins hefur umsjón með.
Í ár hlaut Hrafntinna í 6. JIE þátttökuverðlaunin og Herdís Friðfinnsdóttir frá Amtsbókasafninu kom færandi hendi með viðurkenningu handa henni.