Herdís Anna Friðfinnsdóttir, barnabókavörður á Amtsbókasafninu, kom færandi hendi í Glerárskóla.
Jón Snævar Bjarnason í 3. bekk hlaut útdráttarverðlaun skólans fyrir að taka þátt í að velja Bókaverðlaun barnanna 2015.
Börn og unglingar velja uppáhalds bækurnar sínar og Bókaverðlaun barnanna eru veitt þeim höfundum sem eiga þær bækur sem lesendur velja.
Bækurnar sem ungir lesendur völdu í ár eru bækurnar Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson og Dagbók Kidda klaufa: Kaldur vetureftir J. Kinney í þýðingu Helga Jónssonar.
Það var mikil gleði í 3. bekk þegar Jón Snævar tók á móti bókinn Þín eigin þjóðsaga enda eru 3. bekkingar duglegir að heimsækja skólabókasafnið.