Á morgun, þann 23. október, er bleikur dagur. Dagurinn er tileinkaður brjóstakrabbameini – Á Bleika deginum eru nemendur og starfsfólk beðið um að til sýna lit, bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Nemendur ganga í bekki og hvetja samnemendur og starfsfólk og mæta í bleikri flík þennan dag.
Mætum í bleiku.