Í skólanum er skemmtilegt að vera. Það er meira að segja óvenjulega skemmtilegur dagur í Glerárskóla í dag. Nemendur hvöttu hverjir aðra og starfsmenn skólans til að klæðast bleiku í dag til stuðnings konum sem greinst hafa með krabbamein.
Í dag er einnig knattspyrnumót þar sem nemendur á unglingastigi allra skólanna á Akureyri keppa í sín á milli í fótbolta. Nánar um fótboltann síðar í dag, þangað til lifum við í bleikri veröld.