Dagurinn hjá tæknisérfræðingum úr hópi nemenda skólans hófst á lokayfirferð á ljósa- og hljóðkerfi skólans sem í dag verða sett upp fyrir Glerárvision, söngvakeppnina okkar sem mikil eftirvænting er fyrir.
Söngvakeppnin verður haldin á morgun, föstudag, og þá verðum við öll smart og í hátíðarskapi. Við mætum í betri fötum í skólann og njótum dagskrárinnar og skemmtiatriðanna sem í boði eru. Hádegismaturinn verður ekki að verri endanum. Tíundi bekkur valdi pizzu og öllum til ómældrar gleði.


