Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Árshátíðin

Árshátíð Glerárskóla 2023

Það eru allir velkomnir á árshátíð Glerárskóla. Árshátíðarsýningar verða þrjár og tekur hver u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Verð á sýningar er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri en kr. 1.000 fyrir eldri. Hægt er að greiða með peningum eða korti. Við mælum með því að foreldrar taki ekki ung börn með sér á sýningarnar.

Vakin er athygli á því að þeir nemendur sem eru að sýna hafa þegar séð atriðin á undan og eftir sínu atriði á generalprufu. Við viljum benda forráðamönnum á að meðan á sýningu stendur verður ráp inn og út úr íþróttasal ekki leyft. Sýnum nemendum virðingu og fylgjumst með sýningunni af áhuga☺

Gengið verður inn um inngang við íþróttahús Glerárskóla. Á tengigangi verður sýning á listaverkum og ljóðum nemenda skólans sem hægt er að njóta á leið inn í sal. Kaffisala/kökuhlaðborð verður á vegum 10. bekkinga. Það verður í boði á milli sýninga á miðvikudegi og eftir sýningu á fimmtudegi. Verð kr. 1.500 en 500 kr. fyrir börn á leikskólaaldri.

Miðvikudaginn 29. mars eru tvær árshátíðarsýningar í Glerárskóla. Kennsla er til kl. 13:15. Sýningar verða kl. 17:00 og kl. 19:30

Fimmtudaginn 30. mars er ein árshátíðarsýning og Árshátíðarball Glerárskóla. Kennsla er til kl. 13:15. Sýning er kl. 15:30. Árshátíðarball fyrir nemendur í 1.- 4. bekk hefst kl. 17:45 í íþróttahúsi og stendur til kl.18:45. Kostar 500 kr. á ballið og innifalið er nammi og drykkur. Innganga um íþróttahús. Árshátíðarball fyrir nemendur í 5. – 10. bekk hefst kl. 20:00. Því lýkur hjá 5.- 6. bekk kl. 21:30, 7. bekk kl. 22:00 og hjá 8. – 10. bekk kl. 23:30. Verð fyrir 5.-7. bekk er kr. 1.000 en kr. 1.500 fyrir 8.-10. bekk. Innganga um íþróttahús. Nemendur í 5. bekk mega velja á hvort ballið þeir fara. Munið snyrtilegan klæðnað!

Allur ágóði sýninga og árshátíðar fer í að greiða niður skólaferðalög og vettvangsferðir nemenda.

Árshátíðaratriði 2023:
1. bekkur: Söngur
3. bekkur: Dans
5. EEM: Minningar úr Kattholti
5. EGG: Hótelið
7. GÞB: Draumavélin
7. JIE: Morðgáta
9. bekkur: Ávaxtakarfan

Föstudaginn 31. mars hefst kennsla kl.10:00 og er samkvæmt stundaskrá eftir það. Að skóla loknum þann dag hefst páskafrí nemenda.

Frístund verður opin fyrir alla nemendur í 1. – 4. bekk ef þeir óska að koma á milli klukkan 8:00-10:00, þennan föstudag, eða þar til kennsla hefst. Ekki þarf að skrá fyrirfram. Kennsla hefst að loknu páskafríi þriðjudaginn 11. apríl 2023 samkvæmt stundaskrá.

Kveðja frá stjórnendum Glerárskóla, Eyrúnu, Helgu og Tómasi.