Allir velkomnir
Miðvikudaginn 16. mars eru tvær árshátíðarsýningar í Glerárskóla.
Kennsla er til kl. 13:15. Sýningar verða kl. 17:00 og kl. 19:30. Hvor sýning tekur u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Verð á sýningar er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn undir skólaaldri. Við mælum ekki með því að foreldrar taki ungabörn með sér á sýningarnar.
Kaffihús nemenda í 10. bekk og foreldra þeirra verður starfrækt á milli sýninga eða kl.18:30 -19:30 á neðri hæð skólahússins, í matsal. Þar verða til sölu drykkir og brauð af hlaðborði. Kaffi og meðlæti er á kr. 800, en kr. 400 fyrir 6 ára og yngri. Hagnaður kaffihússins fer allur í ferðasjóð 10. bekkjar.
Fimmtudaginn 17. mars er ein árshátíðarsýning og Árshátíðarball Glerárskóla.
Kennsla er til kl. 13:15. Sýning er kl. 15:30. Verð á sýningu er kr. 500 fyrir börn á grunnskólaaldri, kr. 800 fyrir fullorðna og frítt er fyrir börn undir skólaaldri.
Kaffihús nemenda í 10. bekk og foreldra þeirra verður starfrækt kl. 17:00 – 19:00 á neðri hæð skólahússins, í matsal. Þar verða til sölu drykkir og brauð af hlaðborði. Kaffi og meðlæti er á kr. 800, en kr. 400 fyrir 6 ára og yngri. Hagnaður kaffihússins fer allur í ferðasjóð 10. bekkjar.
Árshátíðarball fyrir nemendur í 1.- 4. bekk hefst kl. 17:45 í íþróttahúsi og stendur til kl.19:00. Ókeypis er á ballið. Bland í poka kostar 250 kr. og gos kr. 250. Foreldrar athugið að kaffihúsið er opið á þessum tíma.
Árshátíðarball fyrir nemendur í 5. – 10. bekk hefst kl. 20:00. Því lýkur hjá 5.-6. bekk kl. 21:30, 7.bekk kl. 22:00 og hjá 8. -10. bekk kl. 23:30. Verð fyrir 5. – 7. bekk er kr. 700 en kr. 1000 fyrir 8.-10. bekk.
Nemendur í 5. bekk mega velja á hvort ballið þeir fara. Munið snyrtilegan klæðnað !
Allur ágóði sýninga og árshátíðar fer í að greiða niður skólaferðalög og vettvangsferðir nemenda.
Viljum benda forráðamönnum á að meðan á sýningu stendur er óæskilegt að vera með ráp inn og út út íþróttasal. Sýnum nemendum virðingu og fylgjumst með sýningunni af áhuga 🙂
Föstudaginn 18. mars er skóladagur í Glerárskóla.
Kennsla hefst kl.10:00 og er samkvæmt stundarskrá eftir það.
Að skóla loknum á föstudeginum hefst páskafrí nemenda.
Kennsla hefst að loknu páskafríi þriðjudaginn 29. mars 2016 samkvæmt stundarskrá.
Árshátíðaratriði 2016:
1. bekkur: Söngur
3. bekkur: Dans
5. bekkur: Leikverk – Heilsubælið
7. bekkur: Leikverk – Tímaflakk
9. bekkur: Leiksýning – Dýrin í Hálsaskógi